SAMSKIPTAFÆRNI: SAMSKIPTI, HÓPAR OG TEYMISVINNA (JPV 2012/262 bls)
Bókin fjallar um samskipti fólks og samspil fólks í teymum. Bókinni er ætlað að efla samskiptafærni lesenda, einkum þeirra sem hafa mannaforráð og vinna í verkefnahópum og teymum. Hún er í senn kynning á nokkrum mikilvægum kenningum um hópa og handbók um hvernig má bæta samskiptin í samvinnu við aðra. Um leið er leitast við að upplýsa fólk og hvetja til umhugsunar um eitt og annað sem upp kemur þegar starfað er í hópum og þeim stjórnað.